ÞakCo
Hús ofan frá að kvöldi
Þakið mælt

Fagmenn á
hvern fermeter

Sláðu inn heimilisfangið og fáðu verðáætlun á sekúndum.

Reikna verðáætlun
eða
Hafa samband

Þjónustur ÞakCo

Þakpappi

Þakpappi og þéttingar

ÞakCo hefur sérhæft sig í þakpappa frá byrjun og hafa teymin okkar gríðarlega reynslu í þakpappalögn. Það skiptir að okkar mati mestu máli við val á verktaka. Þar að auki notum við aðeins hágæða efni sem tryggja langvarandi vörn gegn raka og veðri og eru gerð fyrir íslenskar aðstæður.

Skoða meira
Þakbára

Þakbára og málmvinna

ÞakCo fagaðilar hafa víðtæka reynslu í þakbárulögn, hvort sem um er að ræða litað ál eða aluzink. Við sjáum einnig um uppstólun og alla frágang.

Skoða meira
Klæðningar

Klæðningar og einangrun

Frá álklæðningum til timburklæðninga - okkar fagaðilar í þakvinnu sjá einnig um klæðningar og einangrun sem bætir útlit og orkunýtni byggingarinnar.

Skoða meira

Reiknaðu verkið og sjáðu útlitið fyrirfram

Fáðu verðhugmynd á þínu þaki

Reiknivélin okkar gerir þér kleift að setja inn þína eigin útfærslu á þakinu og fá strax verðhugmynd miðað við valið efni og umfang.

Þegar þú ert ánægður með niðurstöðuna geturðu smellt á „Senda“, og þá berst útfærslan beint til okkar. Við tökum við boltanum þaðan og klárum tilboðið fyrir þig.

Aðstoðarmaður ÞakCo er einnig fær að sýna þér hvernig nýtt þak eða klæðning á húsinu þínu myndi líta út. Sendu inn mynd af húsinu þínu og fáðu niðurstöðu á sekúndum.

Af hverju að velja ÞakCo?

Í áraraðir hefur ÞakCo staðið vörð um íslensk heimili og fyrirtæki.

Faglærðir sérfræðingar okkar byggja á áratuga reynslu og þekkingu, og nota aðeins efni sem standast íslenskt veður og er vottað. Þannig tryggjum við hæstu gæði.

Hvort sem verkefnið snýst um þak, klæðningu eða innivinnu, þá færðu hjá ÞakCo fagfólk sem vinnur með þér – ekki bara fyrir þig.

Með reiknivél ÞakCo færðu strax verðmat. Síðan taka fagaðilar við og skila verki sem stendur af sér áratugi á íslandi.

Verkefni

Nýleg verkefni

Skoðaðu nýleg verkefni sem við höfum unnið að. Við höfum áratuga reynslu í þakvinnu og byggingaþjónustu og leggjum mikla áherslu á vönduð vinnubrögð og góð samskipti við viðskiptavini.

Verkefni ÞakCo