ÞakCo
FagCo
bg

Þjónustur

Parket

Parket er gólfefni sem er gert úr samsettum efnum (tvö lög) eða heill viður í gegn.

bg

Saga okkar

ÞakCo-FagCo lagði, til að byrja með, allann sinn metnað í að þjónusta viðskiptavini með þök, allt frá heildar uppbyggingu til þakskipta á eldri þökum.

Starfsmenn ÞakCo-FagCo hafa starfað við innréttingar og smíða innivinnu frá því að við vorum nemar þannig að þegar við hófum störf við þök var óhjákvæmilegt að eldri kúnnar hefðu samband við okkur þegar það kom að innivinnu hjá sér og sínum fyrirtækjum.

Tegundir parkets

Samsett gólfefni

Efra lagið er oft úr misþykku trélagi, úr ýmsum tegundum timburs, sem eru lýst og/eða lituð(bæsuð), og gefa fallega áferð á timbrið.

Neðra lagið er ýmist úr MDF eða krossvið(grenikrossvið).

Heill viður

Parket úr gegnheilu timbri er gjarnan kallað gegnheilt parket en það býður upp á möguleikann á að pússa upp parketið þegar fer á sjá á því og geta parket því orðið sem ný eftir mikla notkun með pússun og lökkun/bæsun.

Hönnunarmöguleikar

Parket býður upp á fleiri möguleika en að vera bara gólfefni og hefur færst í aukanna að parket sé lagt upp á veggi, loft og jafnvel eldhúseyjar sem getur myndað fallegt flæði og því með ýmsa möguleika í innanhússarkitektúr.

Það er hægt að finna parketefni úr mismunandi tegundum timburs, svo sem eikar, ask, valhnetu og hnotu til að nefna nokkur.

Kostir parkets

Útlit og ending

  • Fallegt útlit: Parketgólf hefur náttúrulegt og klassískt útlit sem getur aukið verðgildi heimilis.
  • Varanleiki: Parket er varanlegt gólfefni sem getur staðið í fjölda ára og enþá lengur með réttu viðhaldi.

Eiginleikar

  • Hita framleiðsla: Parket getur hjálpað við að halda hitanum í heimilinu, þar sem það getur haldið í og losað hita betur en önnur gólfefni.
  • Góð hljóðvist: Parketgólf getur haft hljóðeinangrandi kosti, þar sem það getur dregið í sig hljóð, sér í lagi ef að lagt er gott undirlag.